HÓLMUR HEILSA
STEINUNN SAUNAGUS
BÓKA
STAÐURINN

Fimm hektarar við sjóinn

Hólmurinn við hafið
HÓLMUR HEILSA

Við eigum okkur draum um að skapa lýðheilsu- og listasetur á Suðurnesjum — stað þar sem fólk getur komið, hægt á sér og notið nálægðar við lítt snortna náttúru og óskerts útsýnis yfir hafið og fjöllin.

Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus eru á um fimm hektara landi við sjóinn, mitt á milli Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar, í Leirunni. Þar standa gömul hús og ný, hvert með sitt hlutverk og sína sögu, en það er náttúran allt um kring sem gefur Hólminum sína sérstöku töfra til slökunar.

Leiddar saunagusur eru stór hluti af upplifuninni og bjóðum við alla velkomna til að koma og njóta með okkur.

Hólmurinn er staður til að kasta af sér mæðinni, draga andann djúpt og kjarna sig.

AÐSTAÐAN
01Tvær vel byggðar saunurTILBÚIÐ
02BúningsklefiTILBÚIÐ
03Aðstöðuhús með salerniTILBÚIÐ
04EldstæðiTILBÚIÐ
05SamkomutjaldTILBÚIÐ
06Stutt í sjóinn50 M
07Viðburðasalur og listsköpunarrýmiÍ UPPBYGGINGU
STEINUNN SAUNAGUS

Einstök náttúruupplifun við hafið.

Þrjár 15 mínútna lotur í góðum gusuhita með tónlist, náttúrulegum ilmum, birki, hunangi og þara. Kæling í grasi, sjó eða baðkari á milli lota ásamt léttum veitingum.

Gusumeistarar leiða gesti í gegnum lotur með mismunandi tónlist, þar sem vatni og náttúrulegum ilmum er hellt á heita steina og hitanum dreift um saununa með handklæði eða blævæng sem eykur svitamyndun og hreinsun líkamans.

NAFNIÐ

Steinunn Saunagus fékk nafnið sitt frá Steinunni gömlu, frænku Ingólfs Arnarsonar, landnámskonu sem talin er hafa verið fyrsta konan sem eignaðist land á Íslandi — og er það landið sem Steinunn Saunagus stendur á núna.

Okkur þykir Steinunn tilvalið nafn á saunagusu þar sem gusumeistarar unna steinum til að una fólki.

MYNDIR AF HÓLMINUM
Hólmur Heilsa
Hólmur Heilsa
Hólmur Heilsa
Hólmur Heilsa
Hólmur Heilsa
Hólmur Heilsa
Hólmur Heilsa
Hólmur Heilsa
Hólmur Heilsa
Hólmur Heilsa
Hólmur Heilsa
Hólmur Heilsa