
Að koma inn
Fyrsta lotan er mjúk. Vatni og ilmi er hellt á steinana og hitanum dreift með handklæði. Þú lætur daginn síga af þér.


Fyrsta lotan er mjúk. Vatni og ilmi er hellt á steinana og hitanum dreift með handklæði. Þú lætur daginn síga af þér.

Hitinn stigmagnast. Tónlistin þéttist, svitinn kemur og hugurinn hættir að tala. Gusumeistarinn heldur þér við efnið.

Síðasta lotan er heitust. Svo út — í grasið, sjóinn eða baðkarið — og þú finnur kyrrðina koma.
Hiti og kæling eykur blóðflæði, slakar á vöðvum og getur stuðlað að betri svefni, minni streitu og almennri vellíðan.
Svitinn hjálpar líkamanum að losa sig við eiturefni, hreinsar húðina og gerir hana mýkri og hreinni.
Bókaðu saununa fyrir hópinn þinn. Þið komið sjálf að skipulagningu gusunnar eða viðburðarins.
Fyrir þá sem vilja gera gusuna að vana. Gildir hjá öllum gusumeisturum.
Kemur strax í tölvupósti og gildir í tólf mánuði.



